Shopaholic

Mmmmmm.....
Annars var ég þvílíkt heppin í dag! Ég er gjörsamlega í skýjunum! Við Áróra fórum í bæinn og vorum komnar fyrir utan Gyllta köttinn á slaginu 2... og VITI MENN! Var þá ekki bara akkúrat að byrja pokaútsala, sem þýðir það að við fengum hver sinn pokann og fengum að TROÐA eins og við gátum í þá! Mér tókst að kaupa eftirfarandi...
Rauða og svartköflótta skyrtu sem er þröng en samt síð.. alveg eins og ég vil hafa þær!
Hvít rússkinnsstígvél sem ná alveg yfir hné og eru frekar tryllt!
Fjólubláa hælaskó með sko meeega platform hæl
Hvíta cape frá íslenskum hönnuði
Pastelgræna ömmublússu
Hvíta ömmublússu
2 sokkabuxur, svartar
Alpahúfu
Hatt
Hvítt vesti með perlum á
3 sólgleraugu (ein f. Áróru samt )
Man ekki hvað feira.. reyni að setja myndir inn soon!
Svo fórum við í Rauða Krossinn og ég keypti mér hatt og hanska :) Frekar awesome! Ég samt rakst á geggjaða skó, dr. Martens sem voru ALVEG ónotaðir, og ég sagði Áróru að kaupa svoleiðis því þeir voru í hennar stærð. Við vorum alveg vissar um að þetta væri eftirlíking, því þeir voru alveg ónotaðir og kostuðu 2000 krónur.. svo Áróra ákvað að kaupa svoleiðis fyrir mömmu sína. Svo fer ég með skóna heim til Áróru á meðan hún skrapp í Kringluna. Um leið og mamma hennar fær þá í hendurnar verður hún himinlifandi og segir "Nei það sem stendur á miðanum er bara týpan af dr. Martens skóm, þessir eru ekta! Það stendur inní þeim, og ég finn það líka, ég hef átt milljón svona pör og þetta eru uppáhalds skórnir mínir!"
Svo needless to say þá voru gerð GÓÐ kaup í dag!
Ást til ykkar!








